Ég og Ragna skelltum okkur á tónleika með Midlake síðasta laugardag í Voxhall. Þeir brugðust ekki vonum okkar og voru dúndurgóðir. Ég var bara mest hissa á því hvað það voru fáir en mjög notalegt að þurfa ekki að vera í einhverjum troðningi.

Á sunnudaginn kepptum við leik á móti ASA. Þetta lið var með jafn mörg stig og við fyrir leikinn svo að við máttum búast við jöfnum leik. Sem betur fer höfðum við betur eða unnum 2-0 þannig að við erum núna efstar í okkar seríu.
Á morgun er hinn árlegi kapsejlads eða kappróður milli háskóladeilda í Árósum. Þá mæta örugglega um tíu þúsund manns í háskólagarðinn og drekka bjór og hafa gaman. Það eru alls konar uppákomur og ég er mjög spennt fyrir þessu þar sem þetta er í fyrsta skipti sem ég fer. Stuðið byrjar klukkan tólf um hádegi og stendur fram á nótt.
Á föstudaginn ætlum við Ragna svo að fara til Cambridge og heimsækja Regínu og Bjössa enda ekki langt þangað til þau flytja heim svo að það er ekki seinna vænna en að skella sér til þeirra. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur :)
En annars óska ég ykkur öllum góðrar helgar
Halla
Engin ummæli:
Skrifa ummæli